Opið hús: 11. maí 2025 kl. 15:00 til 15:30.Opið hús: Dalsbraut 15, íbúð 107, 260 Reykjanesbær. Eignin verður sýnd sunnudaginn 11. maí 2025 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Dalsbraut 15, íbúð 107, 260 ReykjanesbæVel skipulögð þriggja herbergja endaíbúð á jarðhæð í nýlegu fjölbýli með sérinngangi, gólfhita og rúmgóðum lokuðum sérafnotareit með hurð út á svipað stóran sólpall.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 88.5 m², þar af er íbúðarrými 81,3 m² og sérgeymsla í sameign hússins 7,2 m². Eign merkt 01-07, fastanúmer 251-3201 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa með flísalögðu gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhús með vandaðri innréttingu frá HTH, hvítum neðri skápum og dökkum efri skápum. Tæki frá Ormsson, Grohe blöndunartæki, spanhelluborð, blástursofn, uppþvottavél og harðparket á gólfi.
Stofa er björt með harðparketi á gólfi. Útgengt á stóran lokaðan
sérafnotareit með hurð, þaðan er gengið út á svipað stóran
sólpall.
Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi og fataskápum upp í loft.
Svefnherbergi er staðsett við forstofu, með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Falleg hvít og svört innrétting með svartri borðplötu, upphengt salerni og walk-in sturtu. Þvottaaðstaða innan baðherbergis með góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla í sameign hússins er 7,2 m² að stærð og merkt 0114.
Verönd er með lokaðan
sérafnotareit með hurð og þaðan er gengið út á svipað stóran
sólpall.
Byggingarlýsing:Húsið er tveggja hæða fjölbýli með 15 íbúðum, byggt árið 2022. Byggingin er staðsteypt, einangruð að utan með steinull og klædd með álklæðningu. Þak er með þakdúk. Gluggar eru timbur/álgluggar með tvöföldu einangrunargleri og útihurðir eru úr timbri. Hjóla- og vagnageymsla og sérgeymsla er á jarðhæð.
Lóð og aðkoma:Bílastæði eru malbikuð. Gangstétt er hellulögð og aðrir hlutar garðsins eru tyrfðir að mestu. Frá bílastæðum er uppitaður gangstígur að aðalinngangsdyrum.
Nánari upplýsingar veitir Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / [email protected]Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný Real Estate Agency advises both sellers and potential buyers, who do not have Icelandic as their first language, to get the assistance of a translator when viewing and signing all necessary documents relating to buying and selling properties.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valný fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Kostnaður sem kaupandi þarf að standa straum af:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati, 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald: 2.700 kr. á hvert skjal (kaupsamningur, veðleyfi o.fl.)
3. Lántökukostnaður: Samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Þjónustu- og umsýslugjald fasteignasölu: Samkvæmt gjaldskrá Valný fasteignasölu.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða, ber kaupanda að greiða skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er innheimt.Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00