Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Suðurgata 37, 230 ReykjanesbærTveggja hæða einbýli með bílskúr á rótgrónum stað í Keflavík. Eignin skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Afgirtur garður með timburpalli og hellulagðri verönd.
Eignin er laus við kaupsamning.Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 169.4 m², þar af er efri hæð 68,7 m², neðri hæð 71,9 m² og bílskúr 28,8 m².Eign merkt 01-01, fastanúmer 209-0739 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag efri hæðar:
Forstofa og
hol með flísum og parketi á gólfum. Veggir og loft klætt með panel. Fatahengi og fallgur stígi niður á neðri hæð og lúga upp í ris.
Eldhús með viðarinnréttingu, ofni í vinnuhæð, helluborði og ísskáp. Uppþvottavél er ekki til staðar.
Stofa og
borðstofa eru rúmgóðar með parketi á gólfi.
Baðherbergi er upprunalegt með baðkari, salerni og vaski. Panel á veggjum og flísar á gólfi.
Lýsing og skipulag neðri hæðar:
Forstofa og
hol með flísum og parketi á gólfum.
Geymsla er innaf forstofu.
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi III er með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og flísum að hluta á veggjum við sturtu. Þar er salerni og vaskur.
Þvottaaðstaða er á baðherbergi með tengi fyrir þvottavél.
Lóð og aðkoma:Bílskúr er 28,8 m² að stærð. Innkeyrsla er hellulögð með hitalögn.
Lóð er afgirt með timburklæddum sólpalli og hellulagðri verönd við bílskúr. Garður er gróinn með trjágróðri og runnum. Lóð er að öðru leyti tyrfð.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Löggiltur fasteignasali
780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00