Valný logo
Skráð 26. mars 2026
Söluyfirlit

Norðurstígur 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
141.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
119.000.000 kr.
Fermetraverð
840.395 kr./m2
Fasteignamat
102.750.000 kr.
Brunabótamat
75.950.000 kr.
Valný fasteignasala
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Löggiltur fasteignasali / Eigandi
Byggt 1923
Garður
Sameiginlegur
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Norðurstígur 3, 101 Reykjavík

Fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð á vinsælum stað í miðbæ Reykjavíkur. Eigninni fylgir bílskúr með sérinngangi sem hefur verið innréttaður sem stúdióíbúð ásamt samþykktu erindi um uppbyggingu ofan á húsið, hæð og ris, fyrir tvær íbúðir, samtals um 130 m². Burðarþolshönnun liggur fyrir og gatnagerðargjöld hafa verið greidd. Bílastæði við hlið bílskúrs fylgir eigninni.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 141.6 m², þar af er íbúðarrými 73,9 m², tvær geymslur 32 m², stigahús 9,7 m² og bílskúr 26,0 m².
Eign merkt 02-01, fastanúmer 200-0536 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Lýsing eignar:
Eldhús er með plastparketi, hvítri innréttingu, bakaraofni og keramik helluborði.
Stofa er björt með plastparketi, loftlistum og hvítmáluðum panel í lofti.
Svefnherbergi I er innangengt frá eldhúsi með viðarparketi og útgengi á svalir.
Svefnherbergi II er rúmgott með viðarparketi og útgengi á svalir.
Svefnherbergi III er með plastparketi.
Baðherbergi er með baðkari, sturtuaðstöðu og dúk á gólfi.

Í kjallara eru tvær geymslur sem tilheyra eigninni, samtals um 32 m².
Bílskúrinn hefur verið innréttaður sem stúdíóíbúð með sérinngangi og er á sama hita- og rafmagnsmæli og aðalíbúðin.

Byggingarlýsing:
Húsið er steinsteypt, byggt árið 1923 og er kjallari og tvær hæðir. Húsið stendur á eignarlóð. Sér mælir er fyrir hitaveitu og rafmagni í íbúðinni. Bílskúr er steinsteyptur, byggður árið 1992. Hann var innréttaður sem stúdíóíbúð árið 2016. Skráð stærð bílskúrs er 26,0 m².

Byggingarréttur:
Fyrir liggur samþykkt erindi byggingarfulltrúa vegna uppbyggingar ofan á núverandi hús, hæð og ris, sem gerir ráð fyrir tveimur íbúðum, samtals um 130 m². Samkvæmt fundargerð byggingarfulltrúa frá 1. júlí 2025 var erindið samþykkt með því skilyrði að ný eignaskiptayfirlýsing verði gerð áður en byggingarleyfi verður gefið út. Burðarþolshönnun liggur fyrir og gatnagerðargjöld hafa verið greidd.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00
Byggt 1992
26 m2
Fasteignanúmer
2000536
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.700.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Valný logo
Fasteignasalan
sem opnar dyrnar að þinni eign.
Hafðu samband
valgeir@valny.isS: 780 2575
Reykjanesvegur 40
kt. 4503240510
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Valný
Knúið af
Fasteignaleitin