Valný logo

Nýbyggingar

Álfadalur - Ný raðhús

Álfadalur - Ný raðhús•

260 Innri-Njarðvík

Ný og fullbúin fjögurra herbergja raðhús á einni hæð við Álfadal í Reykjanesbæ. Eignin er með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, rúmgóðu opnu alrými og innbyggðum bílskúr. Hjónaherbergi er með sér baðherbergi, góðu skápaplássi og útgengi á timburverönd. Gólfhiti er í eigninni, tvö bílastæði eru við húsið og eignin er laus við kaupsamning.

3 Eignir
Fuglavík 35

Fuglavík 35•

230 Keflavík

Ný og vönduð iðnaðarbil í yleiningahúsi við Fuglavík 35 í Reykjanesbæ. Um er að ræða vel hannað atvinnuhúsnæði með góðri lofthæð og stórum innkeyrsluhurðum. Húsið skiptist í samtals 6 iðnaðarbil. Endabilin eru um 80 m² að grunnfleti og önnur bil um 78 m² að grunnfleti. Bilin henta vel fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, geymslu, léttan iðnað, verkstæði eða sambærilega notkun.

3 Eignir
Háteigur

Háteigur •

250 Garður

Ný raðhúð í nýju og ört vaxandi hverfi í Garði. Eignirnar eru vel skipulagðar með tveimur til Þremur rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi og þvottahúsi/geymslu, rúmgóðri stofu og borðstofu í björtu og opnu alrými ásamt glæsilegu eldhúsi með vandaðri innréttingu frá HTH og tækjum frá AEG. Eignin skilast með timburklæddum sólpalli. Lóðin skilast snyrtilega frágengin með tyrfingu, malbikuðu bílaplani og hellulagðri stétt með snjóbræðslukerfi. Gólfhiti er í öllum rýmum.

5 Eignir
Smiðjuvellir 118-148

Smiðjuvellir 118-148•

230 Keflavík

Ný 16 eininga iðnaðar- og geymslubilalengja í Reykjanesbæ. Byggingin stendur á um 10.130 m² lóð sem verður afgirt með öryggisgirðingu og fjarstýrðu hliði. Um er að ræða vandað iðnaðarhúsnæði á einni hæð. Hvert bil er sjálfstætt brunahólf með sérgreinatöflu. Gólf eru slípuð steinsteypa, útveggir og þak eru úr einingum með steinullarkjarna og gluggar og hurðir úr dökkgráu áli. Lóðin verður fullfrágengin með malbikuðum bílastæðum og myndavélakerfi.

12 Eignir
Reynidalur 2

Reynidalur 2•

260 Innri-Njarðvík

Reynidalur 2 er 19 íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum með lyftu í Dalshverfi í Innri-Njarðvík. Í boði eru 2–4 herbergja íbúðir og eignirnar eru lausar við kaupsamning. Húsið er reist úr einangruðum forsteyptum einingum. Á jarðhæð eru fjórar íbúðir með sérinngangi og sérafnotareiti, sérgeymslum, hjólageymslu og tæknirými. Á annarri hæð eru átta íbúðir og á þriðju hæð sjö íbúðir.

2 Eignir
Hólmbergsbraut 13

Hólmbergsbraut 13•

230 Keflavík

4 Eignir
Valný logo
Fasteignasalan
sem opnar dyrnar að þinni eign.
Hafðu samband
valgeir@valny.isS: 780 2575
Reykjanesvegur 40
kt. 4503240510
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Valný