Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Sóltún 3, 230 ReykjanesbærÞriggja herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýli með sérinngangi og bílskúr á vinsælum og rótgrónum stað í Keflavík. Íbúðin hefur verið að mestu endurnýjuð árið 2024, með nýju eldhúsi, endurnýjuðu baðherbergi og nýjum gólfefnum. Sameiginlegt þvottahús er á fyrstu hæð og óinnréttað rými í risi sem býður upp á frekari nýtingarmöguleika.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 137.1 m², þar af er íbúðarrými 94,30 m² og bílskúr 42,80 m².
Eign merkt 02-01, fastanúmer 209-0469 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa er á fyrstu hæð, úr forstofu er gengið inn í sameiginlegt þvottahús með neðri hæð. Steyptur stigi liggur upp á efri hæð með nýlegu teppi.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu með ofn í vinnuhæð og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Harðparket á gólfi. Eldhús var endurnýjað árið 2024.
Stofa og
borðstofa eru rúmgóð með harðparketi.
Möguleiki að gera svefnherbergi í hluta rýmissins.
Svefnherbergi er rúmgott með harðparketi og opnum fataskáp. Útgengt á svalir frá herbergi.
Gangur með harðparketi og stigalúga upp á loft. Í
risi er stórt óinnréttað rými/háaloft með ágætri lofthæð sem býður upp á ýmsa möguleika.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2024. Flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturta, spegill með lýsingu, falleg innrétting og upphengt salerni.
Þvottahús er sameiginlegt á fyrstu hæð. Einnig er sameiginleg
kompa undir húsinu baka til og er þar hitagrind og lagnaleið út í bílskúr.
Lítil
geymsla er staðsett undir stiga.
Bílskúr er séreign efri hæðar, 42,80 m² að stærð og hefur verið nýttur sem ókynnt geymsla í nokkurn tíma. Bárujárn á þaki hefur verið endurnýjað.
Byggingarlýsing:Húsið er tvíbýli og byggt árið 1952. Húsið er klætt báru að utan. Gluggar og hurður úr timbri. Bílskúr er úr timbri byggður árið 1963.
Lóð og aðkoma:Malarinnkeyrsla er fyrir framan bílskúr og er hún sérafnotaréttur efri hæðar. Garðurinn er afgirtur og að stærstum hluta graslagður.
Framkvæmdir að sögn seljenda:2026 voru frárennslilagnir endurnýjaðar frá húsi og út í götu.
2025 var bárujárn og þakpappi endurnýjaður á bílskúr.
2024 var farið í ýmsar viðgerðir og endurnýjanir. Nýtt rafmagn var dregið í, tenglar og rofar endurnýjaðir. Neysluvatnslagnir endurnýjað niður að inntaki. Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjað. Baðherbergi endurnýjað. Skipt um gólfefni á íbúð og teppi á stiga. Gluggar yfirfarnir, sponsaðir og gert við eftir þörfum. Allt málað (veggir, loft hurðar og gluggar).
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00