Valný logo
Skráð 4. des. 2025
Söluyfirlit

Vatnsnesvegur 13

Tví/Þrí/FjórbýliSuðurnes/Reykjanesbær-230
144.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
505.899 kr./m2
Fasteignamat
53.550.000 kr.
Brunabótamat
55.000.000 kr.
Valný fasteignasala
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Löggiltur fasteignasali / Eigandi
Byggt 1941
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Vatnsnesvegur 13, 230 Reykjanesbær

Íbúð á efri hæð með bílskúr, tveimur svölum og sérafmörkuðu lóðarfleti. Skipulagið er hagnýtt með eldhúsi, stofu með útgengi á svalir, rúmgóðu holi, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi. Á jarðhæð er sér þvottahús/geymsla og bílskúr með rafmagnsopnun. Eignin er laus við kaupsamning og innbú getur fylgt með. Um er ræða fallega eign á góðum staðs í miðbæ Keflavíkur, stutt í alla helstu þjónustu eins og skóla, leikskóla, verslanir, veitingastaði og aðra þjónustu.

Smelltu hér til að sjá eignina í 3D!
Smelltu hér til að fá söluyfirlit


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 144.1 m², þar af er íbúðarrými 101,2 m², bílskúr 31,4 m² og geymsla/hitav. á jarðhæð 11,5 m². Eign merkt 01-01, fastanúmer 209-1105 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa 
með flísalagt gólf og fataskáp.
Eldhús er rúmgott með flísum á gólfi, fallegri innréttingu með góðu skúffu- og skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð.
Stofa með nýlegu harðparketi. Útgengi á svalir.
Hol er rúmgott með nýlegu harðparketi. Lúga úr holi upp á ris, gott geymslupláss.
Hjónaherbergi með viðarparketi og fataskáp, útgengi á aðrar svalir.
Svefnherbergi með viðarparketi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, sturta, salerni, handklæðaofn og innrétting með skúffum. Endurnýjað 2021.
Geymsla/þvottahús á jarðhæð hússins með máluðu gólfi.
Bílskúr er 31,4 m² að stærð. Málað gólf og rafmagnsopnari á hurð. Upprunalegur pottofn. Nýtt rafmagn og sér rafmagnstafla ásamt nýjum ljósum.
Verönd er afgirt og tyrfð að mestu. Sólpallur við bílskúr. 

Byggingarlýsing:
Húsið er staðsteypt, byggt árið 1941. Hluti af gluggum er upprunalegir. Búið er að endurnýja glugga í bað- hjónaherbergi. Svalahurðir endurnýjaðar. Þak er valmaþak með aluzink klæðningu. Húsið er einangrað að innan. Bílskúr er úr timbri klæddur með báruklæðningu, byggður árið 1950.

Lóð og aðkoma:
Lóð skipt samkvæmt viðauka við eignaskiptayfirlýsingu í A- og B-fleti. B-flötur tilheyrir efri hæð og er 120 m². Innkeyrsla að bílskúr er hellulögð. Frá bilskúr er útgengt á sólpall, á lóð er einnig geymsluskúr, að öðruleiti er lóð tyrfð.

Framkvæmdir að sögn seljenda:
2025 - Skipt um kili að hluta til og ofnalagnir endurnýjaðar.
2022 - Hús málað að utan.
2021 - Baðherbergi endurnýjað. Flísar endurnýjaðar, öll baðtæki (blöndunartæki, sturta, klósett, vaskinnrétting og handklæðaofn).
2020 - Neysluvatnslagnir endurnýjaðar.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00
Byggt 1950
3.1 m2
Fasteignanúmer
2091105
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
11.500.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Sóltún 3
230 Reykjanesbær
137.1 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
311
510 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Háteigur 40
250 Garður
122.4 m2
Raðhús á einni hæð
413
600 þ.kr./m2
73.440.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Háteigur 34
250 Garður
122.4 m2
Raðhús á einni hæð
413
600 þ.kr./m2
73.440.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Háteigur 17
250 Garður
122.4 m2
Raðhús á einni hæð
413
600 þ.kr./m2
73.440.000 kr.
Valný logo
Fasteignasalan
sem opnar dyrnar að þinni eign.
Hafðu samband
valgeir@valny.isS: 780 2575
Tjarnargata 2
kt. 4503240510
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Valný
Knúið af
Fasteignaleitin