Daggarvellir 4B, 221 Hafnarfjörður
73.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
110 m2
73.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2005
Brunabótamat
59.580.000
Fasteignamat
72.100.000

Eignin er tóm og laus við kaupsamning!

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur lögg. fasteignasali kynna eignina Daggarvellir 4B, um er að ræða þriggja svefnherbergja endaíbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi með 22,3 fermetra hornsvölum með svalalokun og sér stæði í bílakjallara.


Smelltu hér til að fá öll helstu gögn um eignina.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 110.6 m², þar af er íbúðarrými 102,9 m² og sérgeymsla 7,7 m² sem er á sömu hæð og íbúðin. Eign merkt 03-05, fastanúmer 226-8706 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Samkvæmt teikningu skiptist innra skipulag í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.


Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með fallegri innréttingu ágætu skápa- og skúffuplássi. Ísskápur og uppþvottavél fylgja. Bakaraofn í vinnuhæð. Eldhúsið er í samliggjandi rými með stofu. Flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa er með parketi á gólfi og útgengt út á 22.3 m² hornsvalir með svalalokun.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum og annað herbergið með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Fyrir ofan baðkarið er steinlagður fallegur veggur með LED lýsingu. Upphengt salerni og baðkar með sturtu. Innrétting með vaski og ágætu skúffuplássi. 
Þvottahús er innangengt frá baðherbergi með flísum á gólfi og Innrétting með skolvaski og aðstöðu fyrir bæði þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymslan er 7,7 m² og er staðsett á sömu hæð og íbúðin.
Sérstæði í bílakjallara með leigu hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.
Hefðbundin sameign m/hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð.

Nánari upplýsingar veitir Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / [email protected]

Valný Real Estate Agency advises both sellers and potential buyers, who do not have Icelandic as their first language, to get the assistance of a translator when viewing and signing all necessary documents relating to buying and selling properties.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valný fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður: 
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.