Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Tjarnabraut 2, íbúð 103, 260 ReykjanesbærGlæsileg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í nýju 23 íbúða lyftuhúsi á vinsælum stað í Innri Njarðvík. Íbúðin skilast fullbúin með sérsmíðuðum innréttingum frá Parka, innbyggðum raftækjum frá Electrolux, gólfhita og gólfefnum. Á lóðinni verða tvær uppsettar hleðslustöðvar fyrir rafbíla auk þess sem lagnir fyrir rafhleðslustöðvar verða lagðar í öll stæði við húsið.
Eignin er laus við kaupsamning.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 77.4 m².
Eign merkt 01-03, fastanúmer 253-2517 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með sérsmíðaðri innréttingu frá Parka, svörtum vaski og svörtum blöndunartækjum. Eldhústæki eru spanhelluborð, bakaraofn og gufugleypir. Innbyggðir kæli- og frystiskápar ásamt innbyggðri uppþvottavél.
Stofa er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er á hellulagða verönd.
Tvö svefnherbergi, bæði með harðparketi og fataskápum.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta, fallegri innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi.
Geymsla (6,7 m²) er innan íbúðar með glugga.
Í loftum eru
Rockfon hljóðísogsplötur frá Parka sem tryggja góða hljóðvist.
Gólfhiti er í öllum rýmum íbúðarinnar.
Byggingarlýsing:Húsið er staðsteypt, þriggja hæða lyftuhús, einangrað að utan og klætt með báruðu áli. Svalahurðir og gluggar eru álklæddir timburgluggar. Á svölum er útilýsing og rafmagnstengill. Svalahandrið eru glerhandrið með möguleika á svalalokunum samkvæmt skilalýsingu seljanda. Loftaplata er steypt og þak er viðsnúið með tvöföldu lagi af heilbræddum þakpappa og möl þar ofan á XPS einangrun.
Lóð og aðkoma:Bílastæði verða malbikuð. Stéttar við innganga eru hellulagðar og með snjóbræðslukerfi. Hjólaskýli er staðsett á lóðinni sem verður þökulögð.
Allar nánari upplýsingar veitir:Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00