Valný logo
Opið hús:01. júlí kl 17:15-18:00
Skráð 19. júní 2025
Söluyfirlit

Tjarnabraut 2 (103)

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
77.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
773.902 kr./m2
Fasteignamat
49.150.000 kr.
Brunabótamat
46.700.000 kr.
Valný fasteignasala
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Eigandi / Lögg. fasteigna- og skipasali
Byggt 2025
Lyfta
Garður
Gæludýr leyfð
Aðgengi fatl.
Sérinngangur
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Tjarnabraut 2, íbúð 103, 260 Reykjanesbær

Glæsileg og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í nýju 23 íbúða lyftuhúsi á vinsælum stað í Innri Njarðvík. Íbúðin skilast fullbúin með sérsmíðuðum innréttingum frá Parka, innbyggðum raftækjum frá Electrolux, gólfhita og gólfefnum. Á lóðinni verða tvær uppsettar hleðslustöðvar fyrir rafbíla auk þess sem lagnir fyrir rafhleðslustöðvar verða lagðar í öll stæði við húsið. Eignin er laus við kaupsamning.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 77.4 m².
Eign merkt 01-03, fastanúmer 253-2517 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa
er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með sérsmíðaðri innréttingu frá Parka, svörtum vaski og svörtum blöndunartækjum. Eldhústæki eru spanhelluborð, bakaraofn og gufugleypir. Innbyggðir kæli- og frystiskápar ásamt innbyggðri uppþvottavél.
Stofa er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er á hellulagða verönd.
Tvö svefnherbergi, bæði með harðparketi og fataskápum.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta, fallegri innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi.
Geymsla (6,7 m²) er innan íbúðar með glugga.

Í loftum eru Rockfon hljóðísogsplötur frá Parka sem tryggja góða hljóðvist. Gólfhiti er í öllum rýmum íbúðarinnar.

Byggingarlýsing:
Húsið er staðsteypt, þriggja hæða lyftuhús, einangrað að utan og klætt með báruðu áli. Svalahurðir og gluggar eru álklæddir timburgluggar. Á svölum er útilýsing og rafmagnstengill. Svalahandrið eru glerhandrið með möguleika á svalalokunum samkvæmt skilalýsingu seljanda. Loftaplata er steypt og þak er viðsnúið með tvöföldu lagi af heilbræddum þakpappa og möl þar ofan á XPS einangrun.

Lóð og aðkoma:
Bílastæði verða malbikuð. Stéttar við innganga eru hellulagðar og með snjóbræðslukerfi. Hjólaskýli er staðsett á lóðinni sem verður þökulögð.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Dalsbraut 15 (107)
260 Reykjanesbær
88.5 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
312
677 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Háteigur 44
250 Garður
82.1 m2
Raðhús á einni hæð
312
705 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Bárusker 2 (206)
245 Sandgerði
93.7 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
413
650 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Bárusker 2 (104)
245 Sandgerði
83.1 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
312
697 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Valný logo
Fasteignasalan
sem opnar dyrnar að þinni eign.
Hafðu samband
valgeir@valny.isS: 780 2575
Tjarnargata 2
kt. 4503240510
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - Valný
Knúið af
Fasteignaleitin