Valný logo
Skráð 27. júlí 2026
Söluyfirlit

Grænaborg 4 (201)

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurnes/Vogar-190
137.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
89.500.000 kr.
Fermetraverð
649.021 kr./m2
Fasteignamat
75.000.000 kr.
Brunabótamat
76.900.000 kr.
Valný fasteignasala
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Löggiltur fasteignasali / Eigandi
Byggt 2022
Þvottahús
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Grænaborg 4, íbúð 201, 190 Vogar

Vönduð og vel útbúin íbúð í Grænubyggð, nýju og fjölskylduvænu íbúðahverfi við sjávarsíðuna. Íbúðin er með sérsmíðuðum innréttingum, glæsilegu baðherbergi og vönduðum AEG-eldhústækjum. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar svalir. Stutt er í leik- og grunnskóla ásamt allri helstu þjónustu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 137.9 m².
Eign merkt 02-01, fastanúmer 252-5265 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa
er rúmgóð með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með sérsmíðaðri, hvítri U-laga innréttingu með glansáferð og innfelldum gripum. Við framhald borðplötunnar er gert ráð fyrir tveimur til þremur barstólum. Borðplata er úr Corian með dökkri marmaraáferð og er eldhúsvaskur sambyggður plötunni úr sama efni. Vönduð eldhústæki frá AEG fylgja eigninni, þar á meðal spanhelluborð með innbyggðri viftu, blástursofn með kjöthitamæli, innbyggður örbylgjuofn, innbyggður kæli- og frystiskápur og innbyggð uppþvottavél.
Stofa og borðstofa eru í björtu og opnu rými með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á rúmgóðar svalir.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og fataskáp. Útgengt er úr herberginu á svalir og þaðan er einnig innangengt á sérbaðherbergi með sturtu og upphengdu salerni.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er glæsilega innréttað og flísalagt með stórum flísum í marmaraáferð. Þar er dökkgrá innrétting með hvítum postulínsvaski, speglaskápur og hár geymsluskápur. Salerni er upphengt með innbyggðum salerniskassa og hæglokandi setu. Sérstakt loftræstikerfi er í rýminu.
Þvottahús er með flísum á gólfi.
Geymsla er innan íbúðar og er 6,0 m² að stærð.

Lóð og aðkoma:
Lóðin er fullfrágengin og eru bílastæði og heimreið malbikuð. Við húsið er hjóla- og vagnageymsla ásamt ruslaskýli.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Vindakór 10-12
203 Kópavogur
116.8 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
758 þ.kr./m2
88.500.000 kr.
Valný logo
Fasteignasalan
sem opnar dyrnar að þinni eign.
Hafðu samband
valgeir@valny.isS: 780 2575
Reykjanesvegur 40
kt. 4503240510
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Valný
Knúið af
Fasteignaleitin