Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Mardalur 4A, 260 ReykjanesbærVel skipulögð þriggja herbergja íbúð með sérinngangi á vinsælum stað í Dalshverfinu í Innri-Njarðvík. Íbúðin er á einni hæð og er með timburverönd, heitum potti og góðum skjólveggjum. Bílastæði eru hellulögð með snjóbræðslu. Stutt í skóla, leikskóla, verslun og fallegar gönguleiðir.
Smelltu hér til að fá sölufirlit.
Smelltu hér til að sjá staðsetningu.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 85.6 m².
Eign merkt 01-02, fastanúmer 250-9969 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa er flísalögð með fataskáp upp í loft.
Eldhús er með hvítri L-laga innréttingu með innbyggðri uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Plastparket á gólfi.
Stofa er rúmgoð og í góðri tengingu við eldhús. Útgengt út á sólpall með heitum potti. Plastparket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum upp í loft og plastparketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskápum upp í loft og plastparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með snyrtilegri innréttingu sem býður upp á gott skúffupláss, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Einnig er innrétting fyrir bæði þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla (6,4 m²) er staðsett innan íbúðar.
Verönd er timburklæddur sólpallur með góðum skjólveggjum og heitum potti.
Byggingarlýsing:Þakjárn er bárað alúsink. Þakkantar eru klæddir með bandsöguðum panil og eru þakrennur utaná. Útveggir eru steyptir og einangraðir með plasteinangrun að innan og múrað yfir. Að utan eru veggir steinaðir. Gluggar og hurðir eru úr timbri, hvít að lit. Ídráttarrör fyrir bílhleðslutæki er við skjólvegg á milli húsa í innkeyrslu.
Lóð og aðkoma:Bílastæði við húsið eru hellulögð með snjóbræðslu. Aðkoma frá götu að bílastæðum hverrar íbúðar er malbikuð. Sérnotasvæði aftan við hús er með timburverönd, heitum potti og skjólveggjum. Aðrir hlutar lóðar eru tyrfðir.
Nánari upplýsingar veitir:Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Löggiltur fasteignasali
Sími: 780 2575
Netfang:
valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00