Valný logo
Opið hús:04. júní kl 17:00-17:45
Skráð 30. maí 2025
Söluyfirlit

Háteigur 48

Nýbygging • RaðhúsSuðurnes/Garður-250
101.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
685.967 kr./m2
Fasteignamat
41.200.000 kr.
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Eigandi / Lögg. fasteigna- og skipasali
Byggt 2025
Garður
Útsýni
Sérinngangur
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Háteigur 48, 250 Garður

Nýtt raðhús á vinsælum stað í Garði. Um er að ræða þriggja svefnherbergja eign á einni hæð með rúmgóðri stofu, opnu eldhúsi og timburverönd. Frágengin lóð og steypt bílastæði. Eignin er tilbúin til afhendingar.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.

Nánari upplýsingar veitir Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 101.9 m². Eign merkt 01-04, fastanúmer 253-7131 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa
með flísalögðu gólfi.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu og eyju með innbyggðu spanhelluborði, blástursofni og svörtum blöndunartækjum. Innrétting býður upp á gott skápa- og skúffupláss.
Stofa er rúmgóð, björt og í opinni tengingu við eldhús, harðparket á gólfi og útgengt á rúmgóðan sólpall.
Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi.
Tvö svefnherbergi, bæði með harðparketi á gólfum.
Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, hvít/ljósgrá innrétting með melamin-áferð og fallegum svörtum blöndunartækjum, vaskur ofan á borðplötu. Walk-in sturta með þili úr hertu gleri, upphengt salerni.
Þvottahús er flísalagt með tengi fyrir þvottavél.
Geymsla er um 5 m² að stærð með sérinngangi utanfrá.
Verönd er timburpallur um 20 m² með fullfrágengnum skjólveggjum milli íbúða.

Byggingarlýsing:
Húsið er byggt úr vönduðum timbureiningum sem innfluttar eru frá Eistlandi, festar á staðsteyptar undirstöður. Þak er klætt með tvöföldum þakpappa. Gluggar eru úr PVC og hurðir úr timbri. Gólfhiti er innsteyptur í gólfplötu og stýrt með Danfoss hitanemum og stýringum. Öll gluggalaus rými hússins eru með fullfrágengnu loftræstikerfi.

Lóð og aðkoma:
Lóðin er 1320 m² og tyrfð. Innkeyrsla er steypt. Garðurinn er snyrtilegur með fullbúnum timburpalli og skjólveggjum milli íbúða.

Valný fasteignasala er staðsett í Reykjanesbæ:
Tjarnargata 2, 230 Keflavík.

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný Real Estate Agency advises both sellers and potential buyers, who do not have Icelandic as their first language, to get the assistance of a translator when viewing and signing all necessary documents relating to buying and selling properties.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valný fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Í efsta hluta söluyfirlitsins má finna upplýsingar um ástand einstakra byggingarhluta eignarinnar. Hér að neðan má sjá skýringar á þeim hugtökum sem notuð eru við þessa flokkun:
Nýtt - Um nýbyggingu er að ræða.
Upprunalegt – Seljandi hefur ekki vitneskju um að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað – Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta – Einungis hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað – Seljandi þekkir ekki til ástands viðkomandi byggingarhluta, og ekki er mögulegt að leggja mat á ástandið með sjónskoðun eingöngu.


Kostnaður sem kaupandi þarf að standa straum af: 
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati, 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald: 2.700 kr. á hvert skjal (kaupsamningur, veðleyfi o.fl.)
3. Lántökukostnaður: Samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Þjónustu- og umsýslugjald fasteignasölu: Samkvæmt gjaldskrá Valný fasteignasölu.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða, ber kaupanda að greiða skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er innheimt.


Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Háteigur 42
250 Garður
101.9 m2
Raðhús á einni hæð
413
686 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Valný logo
Fasteignasalan
sem opnar dyrnar að þinni eign.
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - Valný
Knúið af
Fasteignaleitin