Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Tjarnabakki 14, íbúð 206, 260 ReykjanesbærBjört fjögurra herbergja endaíbúð á annarri hæð með sérinngangi og þremur svefnherbergjum. Eldhús, borðstofa og stofa mynda opið alrými með stórum gluggum og útgengi á suðursvalir. Eigninni fylgir bílskúr og tvö merkt bílastæði.
Eignin tóm og laus við kaupsamning.Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun. Sýnum samdægurs!Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð 152,0 m². Þar af er íbúðin 120,6 m², merkt 010206, og bílskúrinn 31,4 m², merktur 010108. Fastanúmer F2278789. Eigninni fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:Í
forstofu er fataskápur og hurð með gleri skilur forstofuna frá alrýminu.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu, dökkri borðplötu og glugga yfir vaski. Innbyggður bakarofn, helluborð og háfur fylgja.
Stofa og
borðstofa eru samliggjandi. Stórir gluggar eru á tveimur hliðum stofunnar og þaðan er útgengt á svalir sem snúa að garðinum.
Svefnherbergin þrjú eru við gang sem liggur frá stofu. Inn af hjónaherbergi er
fataherbergi með fataskápum og glugga.
Á
baðherberginu er hvít innrétting við handlaug, upphengt salerni og baðkar með sturtugleri. Þar er einnig gluggi og handklæðaofn.
Í
þvotta- og
geymslurými er hvít innrétting með vaski, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara og hillur.
Bílskúrinn er á jarðhæð með aðkeyrslu fyrir framan. Þar eru vatnstengingar og niðurfall. Bílskúrshurðin er með rafdrifnum opnara og innbyggðri gönguhurð.
Gólfefni eru parket í alrými, á gangi og í hjónaherbergi. Flísar eru í forstofu, á baðherbergi og í þvotta- og geymslurými.
ByggingarlýsingHúsið er steinsteypt tveggja hæða fjölbýlishús með tíu íbúðum. Útveggir eru steinaðir og einhalla timburþakið er stálklætt.
Gólfhiti í íbúðinni og tvöfalt einangrunargler í gluggum.
Lóð, aðkoma og sameignHúsið stendur á 3.282 m² leigulóð. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu eru 20 sameiginleg bílastæði á lóðinni, miðað við tvö á íbúð. Aðkeyrslan fyrir framan bílskúrinn fylgir eigninni.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00