Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Seljudalur 20, 260 Reykjanesbær Um er að ræða vel skipulagt fjögurra herbergja raðhús með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu og opnu alrými, sérþvottahúsi og baðherbergi með bæði sturtu og baðkari. Úr stofu er útgengt á steypta og afgirta verönd. Eignin er tóm og laus við kaupsamning. Eignin er vel staðsett í barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Leikskóli og grunnskóli eru í göngufæri.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 119.0 m². Eign merkt 01-03, fastanúmer 231-2550 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Lýsing og skipulag eignar: Forstofa er með flísum á gólfi og fataskápum. Geymsla er inn af forstofu og er með flísum á gólfi. Þar eru jafnframt hitagrind og rafmagnstafla eignarinnar. Eldhús og stofa eru í björtu og opnu alrými. Eldhúsið er með eikarinnréttingu, eyju, bakarofni og helluborði. Gert er ráð fyrir uppþvottavél. Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á steypta og afgirta verönd. Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og búið baðkari, sturtu, upphengdu salerni og eikarinnréttingu með handlaug. Þvottahús er við hlið baðherbergis og er með flísum á gólfi.
Lóð og aðkoma: Steypt bílaplan er fyrir framan húsið. Aftan við húsið er steypt og afgirt verönd og lóðin er tyrfð.