Valný logo
Opið hús:12. mars kl 17:30-18:00
Skráð 7. mars 2026
Söluyfirlit

Vallengi 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
95.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
814.002 kr./m2
Fasteignamat
68.900.000 kr.
Brunabótamat
50.250.000 kr.
Valný fasteignasala
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Löggiltur fasteignasali / Eigandi
Byggt 1995
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Vallengi 3, íbúð 104, 112 Reykjavík

Fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð í tveggja hæða húsi á vinsælum stað í Engjahverfi Grafarvogs. Um er að ræða rúmgóða stofu og eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, geymslu/þvottahús og sólpall. Fjölskylduvænt umhverfi og stutt í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Bæði Spöngin og Egilshöll eru í göngufæri. Góður sameiginlegur garður með gróðri og leiktækjum, frábært umhverfi fyrir börn og næg bílastæði. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 95.7 m².
Eign merkt 01-04, fastanúmer 221-9109 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa
er flísalögð með fatahengi.
Eldhús með nýlegri svartri innréttingu, ofn í vinnuhæð, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Gott skúffu- og skápapláss.
Stofa er rúmgóð með útgengi á skjólgóðan sólpall.
Hjónaherbergi er rúmgott með opnum fataskápum.
Tvö svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og flísum á veggjum í kringum baðkar. Innrétting með vaski, speglaskápur, salerni og baðkar með sturtuaðstöðu.
Geymsla / þvottahús með flísalögðu gólfi, hillum, borðplötu og tengi fyrir þvottavél.
Útigeymsla er við inngang íbúðar, óeinangruð með rafmagni. Við hlið hennar er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Innréttingar og fataskápar eru frá IKEA.
Gólf eru parketlögð með fiskbeina harðparketi í almennum rýmum og herbergjum en í votrýmum eru flísar.

Framkvæmdir að sögn seljenda:
2025 var parket, eldhúsinnrétting og eldhústæki endurnýjað.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is

Krístin María / Löggiltur fasteignasali / 659-6075 / kristin@valny.is

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Sólheimar 27 (501)
104 Reykjavík
104.4 m2
Fjölbýlishús með lyftu
412
752 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Valný logo
Fasteignasalan
sem opnar dyrnar að þinni eign.
Hafðu samband
valgeir@valny.isS: 780 2575
Tjarnargata 2
kt. 4503240510
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Valný
Knúið af
Fasteignaleitin