Valný logo
Skráð 26. júní 2025
Söluyfirlit

Beykiskógar 19 (203)

Nýbygging • FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
77.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
60.500.000 kr.
Fermetraverð
779.639 kr./m2
Fasteignamat
22.000.000 kr.
Valný fasteignasala
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Eigandi / Lögg. fasteigna- og skipasali
Byggt 2023
Lyfta
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sameiginlegur
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Beykiskógar 19 íbúð 203, 300 Akranes 

Um er að ræða fjögurra hæða nýbyggingu með 11 íbúðum. Íbúðin er þriggja herbergja og staðsett á annarri hæð í lyftuhúsi. Hún afhendist fullbúin með eða án gólfefna, að undanskildum votrýmum sem eru flísalögð. Sérgeymsla, 2,1 m² að stærð, fylgir í sameign á fyrstu hæð.


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 77.6 m², þar af er íbúðarrými 75,5 m² og sérgeymsla í kjallara hússins 2,1 m².
Eign merkt 02-03, fastanúmer 251-9898 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa er með fataskáp.
Eldhús er með vandaðri innréttingu með mjúklokun á skúffum og hurðum ásamt innfeldum ísskáp og uppþvottavél. Einnig er ofn, háfur og helluborð.
Stofa er björt og útgengt út á svalir.
Tvö svefnherbergi, bæði með fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu. Innan baðherbergis er aðstaða fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Tvær geymslur, önnur er 2,6 m² að stærð og staðsett innan íbúðar og hin er 2,1 m² og er staðsett á jarðhæð hússins.

Sameign:
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á fyrstu hæð. Póstkassar eru staðsettir við anddyri. Stigagangur er með teppum og lyfta er í húsinu.

Byggingarlýsing:
Húsið er staðsteypt, einangrað með steinull og klætt með báruáli, nema jarðhæð er klædd með sléttu áli. Í íbúðunum er ofnakerfi. Forhitari er á heitu neysluvatni. Gluggar eru ál-trégluggar og hurðar eru ál að utan og tré að innan. Þak er uppstólað valmaþak, klætt með lituðu áli og einangrað ofan á plötu.

Lóð og aðkoma:
Lóð verður fullfrágengin samkvæmt samþykktum teikningum. Hellulögð stéttar verða með snjóbræðslukerfi fyrir framan aðalinngang. Malbikuð bílastæði verða 19 talsins, þar af eru 5 stæði með ídráttarrörum að tengibrunni fyrir mögulega rafbílahleðslu. Að öðru leyti verður lóðin tyrfð eða með náttúrulegum móa.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is
Tanja Alexandra / Löggiltur fasteignasali / 780-8199 tanja@valny.is
Bergur Daði / Löggiltur fasteignasali / 859-9952bergur@valny.is



Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Beykiskógar 19 (303)
300 Akranes
77.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
785 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Valný logo
Fasteignasalan
sem opnar dyrnar að þinni eign.
Hafðu samband
valgeir@valny.isS: 780 2575
Tjarnargata 2
kt. 4503240510
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - Valný
Knúið af
Fasteignaleitin