Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Smiðjuvellir 140, 230 ReykjanesbærNý 16 eininga iðnaðar- og geymslubilalengja í Reykjanesbæ. Byggingin stendur á um 10.130 m² lóð sem verður afgirt með
öryggisgirðingu og fjarstýrðu hliði. Um er að ræða vandað iðnaðarhúsnæði á einni hæð, reist á staðsteyptum sökkli með járnbentri botnplötu og burðarvirki úr límtré og einingum með steinullarkjarna.
Hvert bil er sjálfstætt brunahólf með sérgreinatöflu, niðurfalli og blinduðum tengjum fyrir vatn og salernisaðstöðu. Gólf eru slípuð steinsteypa, útveggir og þak eru úr einingum með steinullarkjarna og gluggar og hurðir úr dökkgráu áli með K-gleri. Lóðin verður fullfrágengin með malbikuðum bílastæðum og myndavélakerfi sem rekið er af húsfélagi.
Eignin afhendist með lokaúttekt.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 42.9 m².
Eign merkt 01-12, fastanúmer 253-6126 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Frágangur utanhúss:
Útveggir eru úr yleiningum með steinullarkjarna, dökkgráir að utan og hvítir að innan. Allar áfellur eru með innbrenndum lit og hver matshluti aðgreindur með sérstökum kenniliti.
Þak er úr yleiningum með steinullarkjarna með trapísulaga klæðningu, dökkgrátt að utan og hvítt að innan.
Gluggar og útihurðir eru úr áli með K gleri, dökkgrá að lit.
Iðnaðarhurðir eru 3,1 m x 3,0 m og án mótors.
Raflagnir eru með LED útilýsingu sem stýrt er af sólúri. Inntaksrými eru aðskilin fyrir rafmagn annars vegar og heitt og kalt neysluvatn hins vegar.
Lagnir eru með sameiginlegri hitaveitu fyrir hverja einingu. Blinduð tengi fyrir neysluvatn eru í hverju bili og niðurfall er í gólfi. Varmaskiptir er við inntak heita vatnsins.
Frágangur innanhúss:
Gólf eru úr járnbentri, staðsteyptri og slípaðri gólfplötu.
Veggir eru úr yleiningum með steinullarkjarna og hvítir að innan.
Raflagnir eru með greinatafla við gönguhurð, vinnuljós fyrir ofan töflu, tvöfaldan tengil og þriggja fasa tengil. Mótor fyrir loftræstingu tengist ljósarofa og útiljós er yfir gönguhurð.
Lagnir eru með blinduðum tengjum fyrir neysluvatn í hverju bili, upphitun með hitaveituofnum og niðurfalli í gólfi við innkeyrsluhurð.
Frágangur lóðar:
Bílastæði eru fullfrágengin með malbiki.
Lóð er afgirt með galvaníseraðri öryggisgirðingu með innbrenndum lit, fjarstýrt aðgangshlið og þrjú læsanleg gönguhlið.
Myndavélakerfi er rekið af húsfélagi í sameign allra.
Burðarvirki:
Sökklar og botnplata eru úr járnbentri steinsteypu.
Burðarvirki er úr límtré þar sem við á.
Útveggir og þak eru úr yleiningum með steinullarkjarna ST 105 fyrir veggi og ST 175 fyrir þak, dökkgrá að utan og hvít að innan.
Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00