Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Njarðarbraut 1, 260 ReykjanesbærUm er að ræða vel staðsett atvinnuhúsnæði við Njarðarbraut í Reykjanesbæ. Húsnæðið hentar vel fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, svo sem lager, verkstæði, léttan iðnað, þjónustustarfsemi eða sambærilega notkun.
Eignin samanstendur af tveimur bilum sem eru opin á milli í dag, en möguleiki er á að aðskilja þau og breyta skráningu í tvö sjálfstæð atvinnubil.Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.✅ Tvö bil með möguleika á aðskilnaði
✅ Gólfhiti í húsnæði
✅ Vélslípuð steypt botnplata
✅ Rafstýrðar innkeyrsluhurðir ca. 3,30 m á hæð og 3,00 m á breidd
✅ Kaffistofa með innréttingu
✅ Salerni og skolsvaskur
✅ Malbikað bílastæðaplan
✅ Góð staðsetning við Njarðarbraut í Reykjanesbæ
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 356.5 m².
Eign merkt 01-04, fastanúmer 229-6852 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing eignar:Húsnæðið skiptist í tvö samliggjandi atvinnubil sem eru opin á milli. Aðkoma er góð og rafstýrðar innkeyrsluhurðir eru á húsnæðinu, sem hentar vel fyrir rekstur þar sem þörf er á góðu aðgengi fyrir bíla, tæki eða vörumóttöku.
Í húsnæðinu er
kaffistofa með innréttingu og plastparketi á gólfi. Einnig er salerni og skolsvaskur í eigninni. Lagnir eru utanáliggjandi.
Botnplata er steypt og vélslípuð með gólfhita. Útveggir eru úr forsteyptum einingum með 100 mm einangrun. Þak er einangrað með 200 mm þakull og þakklæðning er úr báruáli. Þakkantar eru klæddir með áli og burðarsúlur milli bila eru úr stáli.
Lóð er malbikuð og býður upp á gott athafnarými og bílastæði. Á lóðarmörkum eru sameiginleg sorphirðusvæði samkvæmt teikningu.
Um er að ræða gott og vel staðsett atvinnuhúsnæði með fjölbreytta nýtingarmöguleika á eftirsóttum stað í Reykjanesbæ.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00