Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Leirdalur 10B, 260 ReykjanesbærÞriggja herbergja raðhús á einni hæð í Innri-Njarðvík, með opnu alrými, góðri lofthæð og afgirtum sólpalli með
heitum potti. Eldhús, borðstofa og stofa tengjast saman í björtu alrými með útgengi á sólpallinn. Eignin er með tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, geymslu innan íbúðar og gólfhita. Tvö bílastæði fylgja eigninni.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun. Sýnum samdægurs!Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 85,2 m²Eign merkt 01-02, fastanúmer 250-1149 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa er með hvítum fataskáp.
Eldhús er með hvítri innréttingu, bakaraofni og helluborði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni.
Stofa og
borðstofa eru í opnu alrými með eldhúsi. Upptekið loft er í alrýminu og frá stofu er
útgengt á afgirtan sólpall með heitum potti.
Hjónaherbergi er með fataskápum.
Svefnherbergi er með fataskáp.
Baðherbergi er með hvítri vaskinnréttingu, upphengdu salerni, sturtu með glerskilrúmi, handklæðaofni og glugga. Á baðherberginu er jafnframt innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar.
Gólfefni eru parket á meginrýmum og svefnherbergjum en flísar í forstofu og á baðherbergi.
ByggingarlýsingHúsið er steinsteypt raðhús á einni hæð, byggt árið 2018, og er hluti af fjögurra íbúða raðhúsalengju. Útveggir eru einangraðir að innan og steinaðir að utan í ljósum lit. Þakið er byggt úr timbursperrum, einangrað með steinull og klætt báruðu alúsink þakjárni. Þakkantar eru timburklæddir og þakrennur og niðurföll hvít. Gluggar og útihurðir eru úr timbri, hvít að lit. Skilveggir milli íbúða eru steinsteyptir. Gólfhiti er í húsinu og handklæðaofn á baðherbergi.
Lóð og aðkomaLóðin er leigulóð, samtals 1.216 m², og tilheyrir raðhúsunum við Leirdal 10–12. Fyrir framan húsið er steypt bílastæðaplan og tvö bílastæði fylgja eigninni. Steypt sorpskýli er við aðkomu hússins.
Aftan við húsið er afgirtur sólpallur með heitum potti.Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00