Valný logo
Opið hús:30. maí kl 13:00-13:30
Skráð 26. maí 2026
Söluyfirlit

Heiðarhvammur 6 (302)

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
62.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
39.900.000 kr.
Fermetraverð
639.423 kr./m2
Fasteignamat
37.950.000 kr.
Brunabótamat
34.300.000 kr.
Valný fasteignasala
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Löggiltur fasteignasali / Eigandi
Byggt 1981
Garður
Sameiginlegur
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Heiðarhvammur 6, íbúð 302, 230 Reykjanesbær

Falleg og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á 3. hæð í Heiðarskólahverfi. Eignin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu með útgengi á suðursvalir, svefnherbergi, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og sérgeymslu á jarðhæð. Eignin er vel staðsett í nálægð við grunnskóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 62.4 m².
Eign merkt 03-02, fastanúmer 208-8981 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa/ hol
með parketi á gólfi og fatahengi við inngang.
Eldhús er með svartri, nýlegri innréttingu frá IKEA, bakaraofni í vinnuhæð og nýjum háf. Gott skápa- og skúffupláss. Nýjar flísar á gólfi.
Stofa/ borðstofa er björt og opin með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á stórar svalir með fallegu útsýni.
Svefnherbergi er rúmgott, með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og flísum að hluta við baðkar. Baðkar er með sturtuaðstöðu. Þar er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni, ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.

Framkvæmdir að sögn seljenda:
2022 Neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
2024 Þak yfirfarið og dúkur settur í stað þakjárns.
2025 Eldhúsinnrétting endurnýjuð ásamt eldhústækjum.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00
Valný logo
Fasteignasalan
sem opnar dyrnar að þinni eign.
Hafðu samband
valgeir@valny.isS: 780 2575
Reykjanesvegur 40
kt. 4503240510
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Valný
Knúið af
Fasteignaleitin