Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Miðtún 8, 230 KeflavíkMikið endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýli með sérinngangi og bílskúr. Eignin býður upp á þrjú svefnherbergi, eldhús með nýlegri sérsmíðaðri innréttingu og eyju, samliggjandi stofu/borðstofu, baðherbergi með walk-in sturtu, og þvottahús innangengt frá eldhúsi.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 154.4 m², þar af er íbúðarrými 122,4 m² og bílskúr 32 m².
Eign merkt 02-01, fastanúmer 209-0078 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa og stigi eru með flísalögðu gólfi. Stór fataskápur og útgengt er á svalir frá forstofu.
Eldhús er með nýlegri innréttingu með ofni í vinnuhæð, góðum tækjaskáp ásamt stórri eyju. Harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa samliggjandi rými með harðparketi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og harðparketi.
Tvö svefnherbergi með harðparketi. Fataskápur í öðru þeirra.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, innréttingu með vaski og walk-in sturtu með dökku sturtugleri.
Þvottahús innangengt frá eldhúsi með rennihurð. Flísar á gólfi, handklæðaofn, skápur og borðplata. Lúga með niðurfellanlegum stiga upp í ris.
Bílskúr er 32 m² að stærð. Skúrinn hefur verið mikið endurnýjaður. Nýtt þakjárn, endursmíðaður útveggur, ný einangrun í loft og vegg, nýr gluggi og rafmagn endurnýjað (lokafrágangur á tenglum/töflu eftir).
Framkvæmdir að sögn seljenda:2025 - Ruslaskýli smíðað fyrir framan hús.
2024 - Húsið háþrýstiþvegið, sprunguviðgerðir, húsið málað og þakkantur þar á meðal málaður.
2021/22 - Var farið í framkvæmdir. Allt endurnýjað að innan, lagnir, fræst fyrir gólfhita, íbúðin flotuð og flísalögð af ÁÁ Verktökum, rafmagn endurnýjað af rafvirkja, sérsmíðaðar innréttingar frá MG furniture, nýjar hurðar og parket keypt í Birgisson. Ný lagnagrind, allir pottofnar teknir, settur gólfhiti, lagnir inn á baði, eldhúsi og þvottahúsi endurnýjaðar.
2022 - var grafið fyrir nýju bílaplani og það hellulagt.
Ártal óþekkt - Þakjárn hefur verið endurnýjað.
Ártal óþekkt - Gluggar og útihurðir endurnýjað.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00