Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Flugvellir 15, bil 20, 230 ReykjanesbærUm er að ræða 100,0 m² atvinnu- og geymslubil í nýlegum þjónustukjarna við Reykjanesbrautina í Reykjanesbæ. Bilið er með sérinngangi, 400 x 350 cm aksturshurð, gönguhurð, slípuðu steinsteyptu gólfi, vinnulýsingu og upphitun. Tengingar fyrir heitt og kalt neysluvatn eru til staðar og lagnir eru tilbúnar til tengingar fyrir salernisaðstöðu.
Eignin er laus við kaupsamning.Flugvellir 15 er ríflega 3.338 m² atvinnuhúsnæði sem skiptist í 22 atvinnu- og geymslubil. Húsið er á tveimur hæðum, þar af eru 2.217 m² á 1. hæð og 1.121 m² á 2. hæð. Samanlögð stærð lóðarinnar er 5.079 m².
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.Smelltu hér til að bóka skoðun.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals
100.0 m².
Eign merkt
01-20, fastanúmer
253-1274 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari lýsing eignarÁ vesturhlið er 400 x 350 cm
aksturshurð ásamt gönguhurð.
Aksturshurðin er vindstyrkt flekahurð án mótors, en tengimöguleiki er fyrir sjálfvirkan opnunarbúnað.
Gólfplatan er einangruð, járnbent og staðsteypt og gólfið er slípuð steinsteypa. Innveggir eru úr hvítum, steinullarfylltum yleiningum.
Í bilinu er
vinnulýsing, ljósarofi og tvöfaldur rafmagnstengill við töflu. Loftræsting er tengd við ljósarofa.
Tengingar fyrir heitt og kalt neysluvatn eru aðgengilegar í bilinu. Lagnir eru tilbúnar til tengingar fyrir salernisaðstöðu. Niðurfall er í gólfi með möguleika á að koma síðar fyrir olíuskilju, verði þess þörf vegna starfseminnar.
Húsnæðið er hitað með sameiginlegri hitaveitu hússins, með hefðbundnu ofnakerfi eða hitablásurum.
Byggingarlýsing
Burðarvirki hússins er úr límtré sem reist er á staðsteyptum undirstöðum.
Útveggir og þak eru úr yleiningum með steinullarkjarna. Einingarnar eru dökkgráar að utan og hvítar að innan.
Sökklar og
botnplata eru úr járnbentri steinsteypu og einangruð með 100 mm plasteinangrun. Milligólf er úr timbri með límtrésbitum og gólfbitum sem festir eru í sperruskó.
Gluggar og
útihurðir eru úr dökkgráu áli og allt gler er K-gler.
LED-lýsing utanhúss er fullfrágengin og henni er stýrt með sólúri í aðaltöflu.
Lóð og sameignBílastæði og akstursleiðir eru fullfrágengin og malbikuð.
Virðisaukaskattur og gjöldHúsið er sérskráð vegna virðisaukaskatts. Kaupandi yfirtekur réttindi og skyldur vegna virðisaukaskatts í samræmi við eignarhlutdeild sína og þarf starfsemi í húsnæðinu að vera virðisaukaskattsskyld.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00