Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Grænásbraut 1220, 262 ReykjanesbærRúmgóð fjögurra herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í fjölbýlishúsi. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, rúmgóða stofu með útgengi á svalir, eldhús, tvö baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Eigninni fylgir jafnframt 4,5 m² sérgeymsla á sömu hæð.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals
147,8 m², þar af er íbúðarrými
143,3 m², merkt 01-0303, og sérgeymsla
4,5 m², merkt 01-0305. Eigninni fylgja jafnframt 7,9 m² svalir, merktar 01-0314, sem teljast ekki inn í skráð flatarmál eignarinnar. Fastanúmer eignarinnar er F2304793, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.
Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa þaðan sem innangengt er í geymslu innan íbúðar.
Eldhús er með hvítri innréttingu, ofni, helluborði, háfi og uppþvottavél. Ísskápur fylgir ekki með eigninni.
Stofa er rúmgóð með útgengi á svalir.
Þrjú svefnherbergi eru í eigninni, öll með fataskápum.
Tvö baðherbergi eru í íbúðinni. Bæði eru með baðkari, salerni og innréttingu með vaski.
Þvottahús er innan íbúðar.
Gólfefni Plastparket er á forstofu, stofu og svefnherbergjum. Flísar eru í eldhúsi og dúkur á baðherbergjum, þvottahúsi og í geymslu.
Byggingarlýsing:Grænásbraut 1220 er þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús, byggt árið 1992, með tíu íbúðum og einu stigahúsi. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu eru útveggir steinsteyptir og málaðir og húsið með tvíhalla þaki klæddu bárujárni. Til sameignar teljast meðal annars stigahús, gangar, hjóla- og vagnarými, tæknirými og sameiginlegir byggingarhlutar hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00