Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:Bárusker 2, 245 Sandgerði / Möguleiki á hlutdeildarlániGlæsilegt tveggja hæða fjölbýlishús með 11 vel skipulögðum íbúðum á vinsælum og fjölskylduvænum stað í nýju hverfi í Sandgerði.
Um er að ræða tveggja til fjögurra herbergja íbúðir með sérinngangi og einu til þremur svefnherbergjum. Íbúðirnar skilast með gólfhita í rýmum og vönduðum innréttingum frá HTH. Ídráttarrör fyrir rafhleðslustöð er lagt að öllum bílastæðum á sameiginlegu bílaplani. Sérgeymsla fylgir hverri íbúð og er staðsett í sameign hússins.
Smelltu hér til að fá sölufirlit.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 83.1 m², þar af er íbúðarrými 80,2 m² og sérgeymsla í sameign hússins er 2,9 m². Eign merkt 01-04, fastanúmer 253-4385 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með vandaðri innréttingu frá HTH með mjúklokun á skúffum og hurðum ásamt innfeldum ísskáp og uppþvottavél. Einnig er blástursofn og helluborð. Harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt með harðparketi á gólfi og útgengi út á timburklæddan sólpall með skjólveggjum.
Tvö svefnherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með snyrtilegri innréttingu sem býður upp á ágætt skápapláss, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Innan
baðherbergis er þvottaaðstaða með innrétting fyrir bæði þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla er á fyrstu hæð í sameign hússins, 2,9 m² að stærð.
Byggingarlýsing:
Utanhúss:Húsið er byggt úr forsteyptum steinsteyptum einingum.
Útveggir eru forsteyptir með harðpressaðri steinull, klæddir báruáli.
Þak er einhalla með timbursperrum, klætt með borðaklæðningu og ábræddum þakpappa, einangrað með steinull. Ál/tré
gluggar frá Sokółka/Gluggatækni. Tvöfalt einangrunargler, öryggisgler í gólfsíðum gluggum/hurðum.
Innanhúss:Útveggir ásamt vegg milli íbúða eru steyptar einingar. Aðrir
milliveggir eru léttir, byggðir upp með blikkstoðum og klæddir með tvöföldu lagi af gipsi hvoru megin. Veggir eru spartlaðir, grunnaðir og að lokum eru málaðar tvær umferðir af hvítri málningu.
Loft eru spörsluð, grunnuð og máluð í tveimur umferðum. Votrými með viðurkenndri votrýmismálningu.
Hitakerfi er gólfhiti með hitastýringu í hverju rými, lokað varmaskiptakerfi fyrir gólfhita.
Raflagnir fullfrágengnar, ljósleiðari í íbúðum.
Loftræsting er vélræn loftræsing í votrýmum og geymslum, náttúruleg loftræsing í öðrum rýmum. Slökkvitæki og reykskynjarar fylgja hverri íbúð.
Lóð og aðkoma:Lóð skilast fullfrágengin með tyrfingu, 11 sameiginleg malbikuðuð
bílastæði, þar af tvö fyrir fatlaða, hellulögðum göngustígum og
timburverönd með skjólveggjum á sérafnotaflötum. Sérstæð
sorpgeymsla úr steinsteypu er staðsett á lóðinni með góðu aðgengi. Ídráttarrör fyrir
rafhleðslustöð við hvert bílastæði.
Myndirnar eru til viðmiðunar og geta sýnt sambærilegar íbúðir innan hússins en ekki endilega tiltekna íbúð.
Nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00