Valný logo
Skráð 9. sept. 2025
Söluyfirlit

Miðtún 5

Tví/Þrí/FjórbýliSuðurnes/Reykjanesbær-230
170.4 m2
8 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
106.900.000 kr.
Fermetraverð
627.347 kr./m2
Fasteignamat
49.150.000 kr.
Brunabótamat
88.300.000 kr.
Valný fasteignasala
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Eigandi / Lögg. fasteigna- og skipasali
Byggt 1953
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Miðtún 5, 230 Reykjanesbær

Um er að ræða tvær íbúðir í tveggja hæða húsi í Keflavík. Heildarstærð eignarinnar er 170,4 m². Eignin býður upp á fjölbreytta möguleika, bæði fyrir fjölskyldur og sem fjárfestingarkost. Með neðri hæðinni fylgir rúmgóður bílskúr og útgengt er út á sólpall með heitum potti.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er neðri hæð (01-01, fastanúmer 209-0069) skráð samtals 115,5 , þar af er íbúðarrými 70,8 m² og bílskúr 44,7 m² og efri hæð (02-01, fastanúmer 209-0070) skráð samtals 54,9 m². Birt heildarstærð eignanna er samtals 170,40 m².

Lýsing og skipulag neðri hæðar:
Eldhús með U-laga innréttingu með ofn í vinnuhæð og flísum á gólfi. uppþvottavél fylgir.
Stofa er björt með niðurlímdu viðarparketi.
Hjónaherbergi með stórum fataskáp með speglum og niðurlímdu viðarparketi. Gengið er út á sólpall frá svefnherbergi.
Tvö svefnherbergi með niðurlímdu viðarparketi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, með bæði sturtu og baðkari. Innrétting með vaski, skápur með spegli og handklæðaofn.
Bílskúr er 44,7 m² að stærð með bílskúrshurðaropnara og tveimur inngangshurðum.

Lýsing og skipulag efri hæðar:
Eldhús
 með L-laga innréttingu með ofni, helluborði og uppþvottavél sem fylgir.
Stofa er björt með harðparketi á gólfi.
Þrjú svefnherbergi, öll með harðparketi, og eitt þeirra með fataskáp.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, með walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu með vaski. Tengi fyrir þvottavél er til staðar.

Sameign:
Þvottahús er í kjallara hússins með inngangi utan frá eða frá fyrstu hæð.
Forstofa með flísum á gólfi og stigagangur upp á efri hæð er teppalagður.

Byggingarlýsing:
Húsið er steinað að utan. Gluggar eru úr timbri með ál-listum. Byggingarár er 1953. Þak er bárujárnsklætt og hluti þakrenna er með hitalögn.

Lóð og aðkoma:
Innkeyrsla fyrir framan bílskúr er með snjóbræðslukerfi. Aftan við húsið er lóð sem er að mestu tyrfð, með sólpalli og heitum potti.

Framkvæmdir að sögn seljenda:
Hús steinað að utan (2024)
Ofnar og lagnir skipt út á neðri hæð (2022)
Gólfhiti settur í gólf á efri hæð (2018/19
Baðherbergi á efri hæð endurnýjað að mestu (2018/19)
Bárujárn á bílskúr endurnýjað (2020)
Bárujárn á húsi endurnýjað (2004)
Gluggar og gler endurnýjað (2004)
Hús einagrað að utan og pússað (2004)

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00
Byggt 1959
44.7 m2
Fasteignanúmer
2090069
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
14.750.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1953
54.9 m2
Fasteignanúmer
F2090070
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer eignar
01
Húsmat
25.650.000 kr.
Lóðarmat
5.250.000 kr.
Brunabótamat
34.700.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Heiðarbrún 7
230 Reykjanesbær
170.5 m2
Einbýlishús á einni hæð
514
586 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Valný logo
Fasteignasalan
sem opnar dyrnar að þinni eign.
Hafðu samband
valgeir@valny.isS: 780 2575
Tjarnargata 2
kt. 4503240510
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - Valný
Knúið af
Fasteignaleitin