Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Leirdalur 33, 260 ReykjanesbærVel skipulögð íbúð á jarðhæð í tvíbýli með innbyggðum bílskúr. Tvö svefnherbergi
(möguleiki á þriðja), rúmgott alrými, þvottahús og 58 m² timburpallur með heitum potti. Gólfhiti í allri eign og rafbílahleðsla í bílskúr.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 156.2 m², þar af er íbúðarrými 115,50 m² og innbyggður bílskúr 40,7 m².
Eign merkt 01-01, fastanúmer 230-7375 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa með flísalögðu gólfi og svörtum fataskáp; þaðan er innangengt í bílskúr og þvottahús.
Eldhús með sérsmíðaðri svartri innréttingu, ofni í vinnuhæð, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og granítborðplötu.
Stofa og
borðstofa í opnu rými; útgengt á sólpall.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum.
Mögulegt að skipta stærra herberginu í tvö skv. teikningum.Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, svörtum innréttingum, walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og opnanlegu fagi.
Þvottahús rúmgott, innrétting með góðu skápaplássi, vaskur og aðstaða fyrir þvottavél/þurrkara; innaf rýminu er
geymsla (3,4 m²) og útgengt á pall.
Bílskúr er 40,7 m², flísalagt gólf, innrétting með skolvaski og uppsett rafbílahleðsla.
Sernotareitur er 58 m² timburklæddur sólpallur með skjólveggjum og rafmagnsheitum potti. Frá palli er hlið út á sameiginlegan garð.
Gólfefni: 60×60 cm flísar á allri eign. Gólfhiti í eigninni.
Byggingarlýsing:Húsið var upphaflega byggt 2009 sem einbýlishús á tveimur hæðum og var breytt í tvíbýli 2017. Útveggir eru steinsteyptir og steinaðir. Steypt þakplata með tvöföldum eldsoðnum þakpappa, einangrun og möl. Gluggar og hurðir úr timbri.
Lóð og aðkoma:Hellulagt bílaplan með hitalögn í gönguleið; upplýst blómaker og náttúrusteinn í frágangi. Tvö bílastæði fyrir framan bílskúr fylgja eigninni.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00