Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Einarshöfn 4, 820 Eyrarbakki (Jakobsbær)Einarshöfn 4 er eitt af fyrstu steinsteyptu húsunum á Eyrarbakka og á sér merka sögu. Um er að ræða þriggja hæða einbýlishús sem hefur verið töluvert endurnýjað á undanförnum árum með áherslu á að halda ytra útliti í samræmi við upprunalegan stíl. Skipulag eignarinnar býður upp á
möguleika á að nýta húsið sem allt að þrjár einingar.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 147.6 m², þar af er íbúðarrými í kjallara 46,8 m², á fyrstu hæð 75,4 m² og í risi 25,4 m².
Eign merkt 01-01, fastanúmer 220-0365 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag aðalhæðar:
Forstofa með flísum á gólfi og stiga upp í ris. Frá forstofu er
hol með viðarparketi.
Eldhús er með nýlegri innréttingu með ofn í vinnuhæð. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Stofa,
borðstofa og
eldhús eru í opnu alrými
með viðarparketi á gólfi.
Þessu til viðbótar er í viðbyggingu við bakhlið hússins:Gestasnyrting með salerni og vaski sem var endurnýjað ásamt gólfi og klæðningu á veggjum árið 2020.
Þvottahús með nýlegri sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Forstofa með sérinngangi og flísum á gólfi.
Lýsing og skipulag kjallara:
Hol er parketlagt með vaskainnréttingu og
geymslu. Útgengt í baklóð.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fatahengi.
Svefnherbergi með teppi á gólfi.
Baðherbergi með flísalagt gólf, innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Lýsing og skipulag efri hæðar (ris):
Eldhús og
stofa er í opnu alrými.
Svenherbergi með teppi á gólfi og fataskáp.
Salerni og vaskur er stúkað af en baðkar er í alrými.
Byggingarlýsing:"Húsið var byggt árið 1913 af Jakobi Jónssyni formanni og bónda og telst vera steinsteypusveitser. Yfirsmiður hússins var Kornelíus Stark Sigmundsson en honum til aðstoðar störfuðu Magnús Magnússon í Nýjabæ og Ólafur Bjarnason í Stígshúsi við bygginguna. Húsið er eitt af fyrstu steinsteyptu húsunum á Eyrarbakka." Húsið hefur haldið sér óbreyttu að mestu að utan en herbergjaskipan hefur verið töluvert breytt. Ekki eru til neinir uppdrættir af eigninni. Húsið er klætt að innan með timburklæðningu og aðalhæð óeinangruð. Við norðurhlið hússins var byggð bárujárnsklædd viðbygging. Þakið er mænisþak og hefur járn og rennur verið endurnýjað og loft einangrað. Gluggar eru úr timbri og hafa einnig verið endurýjaðir fyrir utan í viðbyggingu. Farið var í múrviðgerðir að utan árið 2018 og húsið málað.
Lóð og aðkoma:Snyrtileg lóð umkringir húsið með stórum timburklæddum sólpalli bæði að framan og aftanverðu hússins. Tvö hellulögð bílastæði ásamt garði með blómarunnum og trjágróðri. Lóð að öðru leiti tyrfð.
Framkvæmdir að sögn seljenda:2025 - Vatns og hitavatnslagnir endurnýjaðar ásamt ofnum. Kjallari gerður íbúarhæfur. Baðherbergi í kjallara endurnýjað (baðkar, salerni, handklæðaofn, vaskur, ásamt aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara) og settur gólfhiti. Nýtt salerni og baðkar í risi.
2023 - Ný rafmagnstafla og rafmagnslagnir endurnýjað að mestu.
2022 - Nýjar tröppur steyptar við inngang að framanverðu og timburhandrið endurnýjað.
2020 - Gestasnyrting endurnýjuð í hólf og gólf, nýtt upphengt salerni og vaskur. Skipt einnig um sturtu í þvottahúsi.
2019 - Bárujárn og þakrennur endurnýjaðar. Timbur yfirfarið og þak einangrað.
2019 - Allir gluggar endurnýjaðir fyrir utan tvo í viðbyggingu. Nýr þakgluggi settur árið 2026.
2018 - Skipt um allar frárennslislagnir frá húsi og út í götu. Einnig var drenað suður- og austurhlið. Farið var í múrviðgerðir á austur, suður og vesturhlið.
2017- Skipt um jarðveg í kringum húsið, hellulagt bílaplan og settur timburpallur og geymsluskúr.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00