Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Holtsgata 16, 260 ReykjanesbærTveggja hæða parhús í hjarta Njarðvíkur. Um er að ræða þrjú svefnherbergi (möguleiki á fjórða), rúmgóð stofa, eldhús með nýlegri innréttingu, baðherbergi á efri hæð, þvottahús og gestasalerni á neðri hæð. Verönd er bæði að framan- og aftanverðu hússins.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 122.8 m², þar af er neðri hæð 75,6 m² og efri hæð 47,2 m².
Eign merkt 01-01, fastanúmer 209-3620 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag neðri hæðar:Forstofa er flísalögð og innaf forstofu er
geymsla.
Hol og stígi er flísalagt. Undir stíga er
geymsla.
Eldhús er með hvítri innréttingu sem býður upp á gott skúffu- og skápapláss. Rými fyrir tvöfaldan ísskáp. Harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa er rúmgóð með flísum á gólfi.
Þvottahús með flísalögðu gólfi, innangengt á gestasalerni, útgengt á verönd.
Gestasalerni með upphengdu salerni og handlaug. Flísar á gólfi og rennihurð.
Lýsing og skipulag efri hæðar:Þrjú herbergi, öll með fataskápum. Útgengt á svalir úr hjónaherbergi. Möguleiki að bæta fjórða við.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni og baðkar. Innrétting með vaski og ágætu skápaplássi. Möguleiki á sturtu ef baðkar er fjarlægt.
Gangur er flísalagður.
Framkvæmdir að sögn seljenda:2024 - Timbur og bárujárn endurnýjað á efra þaki. Bárujárn á neðra þaki endurnýjað en ártal ekki vitað.
2020 - Bæði baðherbergi endurnýjuð.
Ártal ekki vitað - Gluggar og útihurðir endurnýjað fyrir utan einn glugga í forstofu.
Lóð og aðkoma:Tyrfður garður og timburverönd að framan. Að aftan er steypt og hellulögð verönd. Stór steypt innkeyrsla og rúmgóður geymsluskúr á lóð.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00