Valný fasteignasala og Kristín María Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali kynna:
Eskihlíð 16, 105 Reykjavík:Falleg og björt þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð með auka herbergi í risi með útleigumöguleika. Eignin skiptist í rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi, tvær stórar stofur með útgengi á svalir, endurnýjað fallegt eldhús og baðherbergi. Í kjallara er góð geymsla og í risi er herbergi með aðgengi að snyrtingu sem hægt er að leigja út eða nýta sem vinnuherbergi. Gegnheilt parket er á allri íbúðinni fyrir utan eldhús, bað og hol en þar eru steinflísar. Fallegt útsýni er á alla vegu úr eigninni. Eignin er vel staðsett í nálægð við skóla, leikskóla, alla helstu þjónustu og gott útivistarsvæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 119.1 m², þar af er íbúðarrými 102,4 m², herbergi í risi 9,2 m² sem merkt er geymsla og sérgeymsla í kjallara hússins 7,5 m². Eign merkt 04-01, fastanúmer 203-0336 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhús er endurnýjað með flísum á gólfi, ofni í vinnuhæð og góðu skápa- og vinnuplássi.
Stofa og borðstofa eru með gegnheilu parketi á gólfi, mjög rúmgóðar og útgengi á svalir. Auðvelt er að breyta annarri stofunni í herbergi.
Hjónaherbergi er stórt með gegnheilu parketi á gólfi og miklu skápaplássi.
Herbergi í risi með parketi á gólfi og aðgengi að sameiginlegri snyrtingu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu og lítilli innréttingu.
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara hússins, mjög snyrtilegt.
Geymsla er rúmgóð í kjallara hússins.
Næg bílastæði eru fyrir utan húsið og tvær sameiginlegar hleðslustöðvar.
Framkvæmdir að sögn seljanda:2026 Nýtt rafmagn dregið í geymslu í kjallara.
2025 Nýjar innihurðir og karmar málaðir og skipt um þéttilista.
2024 Breytingar á ofnalögn, nýir lofthitastýrðir ofnakranar.
2024 Íbúð máluð (fyrir utan baðherbergi).
2022-2023 Eldhúsinnrétting endurnýjuð og veggflísar. Ný tæki (fyrir utan uppþvottavél 2018) og vaskur. Kítti í sturtu endurnýjað.
2018-2020 Skipt um salernisskál og sturtu- og blöndunartæki á baðherbergi.
2014 Nýir karmar í hurðargöt settir upp í stofu og skipt um gerefti (sérsmíðað í upprunalegu útliti).
2013 Brunahurð sett í herbergi í risi.
Hér er um að ræða einstaklega góða og fallega eign sem er bæði rúmgóð og björt og státar af glæsilegu útsýni yfir hafið og borgina. Hún býður upp á mikla möguleika, þ. á m. útleigumöguleika. Eignin er í nálægð við mikla útivistarparadís í Öskjuhlíð og nágrenni. Þá eru bæði skólar og helsta þjónustu örstutt frá. Allar nánari upplýsingar veitir:
Kristín María Gunnarsdóttir / Löggiltur fasteignasali / 659-6075 / kristin@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00