Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Hólmbergsbraut 13, bil 10, 230 ReykjanesbærIðnaðar- eða geymsluhúsnæði. Um er að ræða rými á einni hæð með tveimur inngangshurðum með möguleika á millilofti. Húsnæðið er hluti af nýrri byggingu sem samanstendur af 14 sérrýmum, hönnuð fyrir smáiðnað, geymslu eða sambærilega starfsemi.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 107.6 m².
Eign merkt 01-10, fastanúmer 253-4081 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.- Bílskúrshurð er 4,0m á breidd og 4,2m á hæð.
- Möguleiki á millilofti.
- 14,8m á lengd og 6,9m á breidd.
- Tvær inngönguhurðir, framan og aftan.
- Lofthæð upp í mæni er 6,9m.Lýsing eignar:Eignin er iðnaðar- eða geymsluhúsnæði á einni hæð í notkunarflokki 1.
Möguleiki er á að setja upp milliloft. Eigninni er skilað án innveggja og innréttinga, þannig að kaupandi getur innrétt í samræmi við eigin þarfir. Ekki eru settar snyrtingar í rýmin en lagnakerfið er hannað með það í huga að kaupandi geti komið þeim fyrir síðar, ef þörf krefur. Allir innveggir verða málaðir.
Byggingarlýsing:Byggingin er vönduð og gerð úr staðsteyptum veggjum.
Þak klætt með samlokueiningum úr steinull sem hvíla á límtrésbitum.
Undirstöður eru steyptar og botnplata einangruð.
Innveggir milli rýma eru steinsteyptir.
Útveggir eru steinsteyptir, einangraðir með steinull og klæddir lyggjandi báruáli.
Gluggar eru álgluggar með tvöföldu einangrunargleri. Tvær
inngangshurðir eru til staðar, ein að framan og önnur að aftan, auk
innkeyrsluhurðar sem er gluggalaus með mótoropnun. Almenn
loftræsting með opnanlegum fögum. Hvert bil hefur eigið kaldavatnsinntak, hitaveituinntak og rafmagnstöflu.
Gólfið er steypt og afhendist án frekari frágangs.
Lóð og aðkoma:Heildarstærð lóðar er 3.841,2 m², skilgreind sem iðnaðar- og athafnalóð. Tvö stæði eru útreiknuð fyrir hvert bil. Lóðin er malbikuð á framhllið. Aftan við bygginguna verður hæðarmunur jafnaður með grjóthleðslu eða sambærilegu.
Hólmbergsbraut 13 er vel hannað iðnaðar- og geymsluhúsnæði sem er hentugt fyrir smáiðnað, geymslu eða aðra atvinnustarfsemi. Hver eigandi hefur möguleika á að innrétta rýmið eftir eigin þörfum, og er það afhent tilbúið til frekari útfærslu.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00