Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Auðarstræti 13, 105 ReykjavíkBjört og vel skipulögð tveggja herbergja kjallaraíbúð við Auðarstræti 13, í fallegu og grónu hverfi, Norðurmýrinni. Auðvelt aðgengi er að stofnbrautum og íbúðin í göngufæri við helstu þjónustu. Reglulegu viðhaldi á húsinu hefur verið sinnt og endurbætur gerðar á eigninni sjálfri. Meðal annars var baðherbergi endurnýjað í heild árið 2018, skólp og drenlögnum skipt út og farið í sprunguviðgerðir a ytra birði hússins. Allt unnið af viðurkenndum fagaðilum. Sameiginlegt þvottahús er á sömu hæð og íbúðin.
Eignin getur verið afhent með eða án leigjanda.Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 67,1 m². Þar af er íbúð í kjallara 64,2 m², merkt 01-0001, og geymsla 2,9 m², merkt 01-0004. Fastanúmer eignarinnar er 201-1943 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:
Hol/forstofa með fataskáp.
Eldhús er með hvítri innréttingu, ofni, helluborði, háfi og uppþvottavél. Gluggar eru á tvo vegu og gott vinnu- og skápapláss er í eldhúsinu. Uppþvottavél fylgir eigninni og ísskápur með frysti getur fylgt samkvæmt samkomulagi.
Stofa og
borðstofa eru samliggjandi og tengjast eldhúsi. Stofan er með glugga á tvo vegu.
Svefnherbergi er með rúmgóðum fataskápum og glugga sem snýr að garði.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu og vaski, upphengdu salerni, sturtu með glerþili, handklæðaofni og glugga. Gólfhiti er á baðherberginu og vifta.
Þvottahús er sameiginlegt og á sömu hæð og íbúðin. Þar hefur hver íbúð aðstöðu fyrir eigin þvottavél. Þvottavél getur fylgt samkvæmt samkomulagi.
Gólfefni: Parket er á meginrýmum og svefnherbergi en flísar eru á baðherbergi.
Bygging, lóð og aðkoma:Húsið er steinsteypt fjölbýlishús, byggt árið 1938. Lóðin er 556,4 m² leigulóð og er garður sameiginlegur, með þeim réttindum og eignaskiptingu sem fram kemur í þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu og lóðarleigusamningi. Bílastæði eru við götu.
Framkvæmdir að sögn seljenda:2024-2025: Sprunguviðgerðir á ytra byrði hússins.
2021: Frágangur á plastdúk við bakhlið hússins og niðurfallsrör á framhlið endurnýjað.
2019: Krani við kaldavatnsinntak endurnýjaður og þrír kranar á hitaveitugrind hússins endurnýjaðir.
2018: Baðherbergi íbúðarinnar endurnýjað í heild. Veggir svefnherbergi lagfærðir og endurbyggðir, auk sprunguviðgerða á útvegg. Gólf jöfnuð eftir þörfum og nýtt parket lagt í stofu og svefnherbergi ásamt nýjum listum og gereftum. Sprunguviðgerðir gerðar á ytra byrði hússins og skorsteinn klæddur með álklæðningu.
2015: Skólplagnir og drenlagnir umhverfis húsið endurnýjuð.
Um 2000: Gluggar og gler, ofnar og ofnalagnir endurnýjuð.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00