Steinhella 14 bil 25, 221 Hafnarfjörður Rúmgott iðnaðarbil með um 3,9 m lofthæð, innkeyrsluhurð og geymsluloft. Afstúkuð snyrting er í bilinu og flóttaleið á sameiginlegan gang. Hentar vel fyrir lager, verkstæði eða létta iðnaðarstarfsemi.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 48.1 m². Eign merkt 01-25, fastanúmer 230-7691 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Lýsing og skipulag eignar: Innst í bilinu er opið geymsluloft sem ekki er skráð í fermetrafjölda eignarinnar. Lofthæð í húsnæðinu er um 3,9 m og innkeyrsluhurð um 3,5 m á hæð og 3,4 m á breidd. Gönguhurð er til hliðar við innkeyrsluhurð. Innanmál bilsins eru um 4,82 m á breidd og 9,30 m á dýpt. Innst í bilinu er afstúkuð snyrting með salerni og vaski og flóttaleið út á sameiginlegan gang. Húsnæðið er rúmgóður salur með aukinni lofthæð og millilofti og eru hillur til staðar í rýminu. Sér rafmagn og hiti eru í bilinu og er ekki virðisaukaskattskvöð á iðnaðarbilinu. Húsfélag er virkt og gilda skýrar reglur um umgengni á sameiginlegri lóð.
Byggingarlýsing: Húsið er timburgrindarhús á steyptum undirstöðum, byggt árið 2013. Útveggir eru úr timbri með báruklæðningu að utan. Þak er tvíhalla og klætt með þakdúk.