Valný logo
Opið hús:18. okt. kl 14:00-14:30
Skráð 14. okt. 2025
Söluyfirlit

Unnardalur 5B (102)

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
76.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.900.000 kr.
Fermetraverð
746.719 kr./m2
Fasteignamat
48.150.000 kr.
Brunabótamat
46.700.000 kr.
Valný fasteignasala
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Eigandi / Löggiltur fasteignasali
Byggt 2022
Garður
Sérinngangur
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Unnardalur 5, íbúð 102, 260 Reykjanesbær

Tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og hellulagðri verönd. Rúmgott alrými, eitt svefnherbergi og geymsla sem nýtist sem geymsla eða herbergi. BÓKA SKOÐUN.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 76.2 m².
Eign merkt 01-02, fastanúmer 251-3343 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa 
er flísalögð með fataskáp.
Geymsla innaf forstofu, rými sem nýtist sem geymsla eða herbergi, harðparket á gólfi.
Eldhús er opið við stofu, harðparket á gólfi. Snyrtileg hvít L-laga eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi. AEG ofn í vinnuhæð. Innbyggð uppvöskunarvél.
Stofa með harðparketi á gólfi. Útgengt á hellulagða verönd.
Svefnherbergi er rúmgott með stórum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innrétting með handlaug og blöndunartækjum, upphengt salerni og walk-in sturta. Þvottaaðstaða er á baðherbergi.

Byggingarlýsing:
Húsið er sex íbúða fjölbýli, byggt 2022. Útveggir einangraðir milli burðarvirkis og veðurkápu með plasteinangrun. Þak er viðsnúið með tveimur lögum af heilbræddum þakpappa og þakmöl ofan á. Gluggar eru ál/timbur; hurðir og opnanleg fög úr áli.

Lóð og aðkoma:
Stéttar við hús og bílastæði hreyfihamlaða eru með snjóbræðslu. Búið er að leggja lagnir í öll bílastæði fyrir bílhleðslustaura, eftir að draga í rafmagn og tengja. Lóð er að öðru leyti tyrfð.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Bárusker 2 (104)
245 Sandgerði
83.1 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
312
697 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Valný logo
Fasteignasalan
sem opnar dyrnar að þinni eign.
Hafðu samband
valgeir@valny.isS: 780 2575
Tjarnargata 2
kt. 4503240510
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - Valný
Knúið af
Fasteignaleitin