Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Dalsbraut 1, íbúð 102, 260 Reykjanesbær Fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegu fjölbýlishúsi í Dalshverfi. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi og opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast saman. Gólfsíðir gluggar eru í alrými og þaðan er útgengt á hellulagða verönd. Eigninni fylgja sérgeymsla og merkt bílastæði. Laus við kaupsaming.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 81,7 m², þar af er íbúðarrými 77,8 m² og sérgeymsla 3,9 m². Eignin er merkt 01-0102, fastanúmer F2526447, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Lýsing og skipulag eignar: Anddyri með fataskáp. Eldhús er í opnu alrými með gráum innréttingum, góðu skápaplássi og ofni í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með eigninni. Stofa og borðstofa eru í opnu alrými með eldhúsi. Gólfsíðir gluggar eru í stofu og þaðan er útgengt á hellulagða verönd. Hjónaherbergi með fataskáp. Tvö svefnherbergi eru til viðbótar. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er innrétting með vaski, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta með glerþili. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Gólfefni eru vínylparket á meginrýmum og svefnherbergjum en flísar á baðherbergi. Sérgeymsla er 3,9 m² og staðsett í sameign hússins.
Byggingarlýsing: Húsið er þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir loftræstri álklæðningu ásamt viðarklæðningu að hluta. Gluggar og útihurðir eru úr tré og áli. Í húsinu er lyfta. Upphitun er með ofnum.
Lóð og aðkoma: Eigninni fylgir sérafnotaflötur á lóð fyrir verönd samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er lokuð og upphituð og sorp er í djúpgámum á lóð. Eigninni fylgir merkt bílastæði.