Valný er ný fasteignasala á markaðnum. Sem nýr aðili á markaðnum höfum við tækifæri á að koma inn með nýtt sjónarhorn og nýjar áherslur. Við ætlum okkur að vera framúrskarandi í öllu því sem við gerum, þannig að upplifun viðskiptavina verði sem best og þægilegust.
Til að skara framúr mun Valný einbeita sér að persónulegri þjónustu. Þarfir viðskiptavina eru mismunandi og munum við meta þarfir hvers og eins sérstaklega. Hjá fasteignasölunni starfa sérfræðingar sem munu aðstoða þig í hverju skrefi.
Stofnandi og eigandi Valný fasteignasölu er Valgeir Leifur. Valgeir hefur víðtæka reynslu af fasteignasölu. Auk þess að vera löggiltur fasteignasali er Valgeir einnig faglærður húsasmiður og nýtist sú reynsla vel í fasteignasölu.
Fasteignasalan Valný miðar ávallt á að skapa jákvæð tengsl og gera upplifun viðskiptavina sem besta. Persónuleg samskipti, liðleiki í þjónustu og jákvæðni er það sem gerir okkur það kleift að skara framúr.
Vertu með í þessu ferðalagi og leyfðu okkur að gera þína drauma að veruleika.
Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.